Þjónusta í Lestrarmiðstöð
Lestrarmiðstöð, S: 8933961 – audur@lestur.is
Auður B. Kristinsdóttir, M.Ed. í uppeldis- og kennslufræði.
Veitt er þjónusta fyrir þá sem eiga í vanda með lestur og ritun. Greining á leshömlun/lesblindu (dyslexiu) og stærðfræðivanda (dyscalculia). Ráðgjöf um námstækni og úrræði.
Veitt er ráðgjöf til foreldra barna með lestrar- og námsvanda. Ekki þarf að liggja fyrir greining til að fá þjónustu.
Mat á lestrarvanda barna. Sérhæfð einstaklingsmiðuð kennsla fyrir börn og fullorðna.
Ráðgjöf um námstækni fyrir nemendur með leshömlun.
Fræðsla og ráðgjöf til fagaðila.
Meginmarkmið okkar er að styrkja og efla lestrar- og ritunarfærni, að vinna með lesskilning og tjáningu og stuðla að meiri lestrarfærni og eflingu læsis.
Aðferðin okkar
Við byggjum á rannsóknum á lestri og leshömlun og aðferðum sem reynst hafa árangursríkar við kennslu nemenda með lestrarvanda. Við leggjum mat á stöðu einstaklingsins í lestri og ritun og gerum kennsluáætlun áður en kennsla hefst.
Markmið okkar hefur frá upphafi verið að allir sem til okkar koma sýni framfarir, við byggjum á jákvæðni, nýtum fjölbreyttar leiðir við þjálfun, nýtum tölvutækni, rafbækur og hljóðefni.
Byggt er á þeirri sýn að með markvissri kennslu verði framfarir í námi sem stuðlar að auknum þroska, sterkari sjálfsmynd og betri líðan nemenda. Við hvetjum foreldra til að fylgjast vel með framförum barna sinna og verða fyrirmyndir barna í lestri og lestur verði sjálfsagður hluti í daglegu lífi.
Við höfum síðan árið 2001 sinnt nemendum á öllum aldri og verið farsæl í störfum.
Lestrarmiðstöðin er í Álfabakka 12, 2.hæð, í Mjódd 109 Reykjavík ( sjá kort)