Leshömlun

Hvað er átt við þegar talað er um leshömlun ?

Tal og mál er undirstaða lestrar og lestrarerfiðleikar eru af málrænum toga, leshömlun ( dyslexia) er því sértækur námsörðugleiki af taugalíffræðilegum uppruna. Einkennin birtast í erfiðleikum með nákvæman, sjálfvirkan lestur og slakri færni í stafsetningu. Erfiðleikana má í flestum tilfellum rekja til vanda við úrvinnslu málhljóða sem er ekki í samræmi við aðra vitsmunalega hæfni einstaklingsins og koma fram þrátt fyrir vandaða lestrarkennslu. Dyslexía getur leitt til erfiðleika með lesskilning og ónógrar lestrarreynslu, sem aftur getur komið niður á þróun orðaforða og öflun þekkingar í gegnum lestur.
https://lesvefurinn.hi.is/lesblinda

Vísbendingar um lestrarvanda kom oft fyrst fram í tal- og málvanda á leikskólaaldri eða þegar barnið fer að læra bókstafi og lesa og skrifa í fyrstu bekkjum grunnskóla.  Einnig síðar þegar reyna fer á meira á lestrarfærni, stafsetningu og ritun í efri bekkjum grunnskóla eða á fyrstu árum í framhaldsskóla. Með góðri kennslu og þjálfun sem oft tekur mikinn tíma alla skólagönguna geta flestir einstaklingar með dyslexíu náð viðunandi tökum á lestri, en oft verða stafsetningarerfiðleikar viðvarandi.

Margir nemendur með leshömlun finna ekki fyrir verulegum vanda fyrr en nám er hafið í háskóla, þeir hafa þá oft sögu um þessa erfiðleika en hafa tekist á við þá með þjálfun, skipulagðri vinnu og góðum stuðningi og hvatningu frá grunnskólaaldri.

Aldrei of seint

Margir nemendur sem finna sig ekki í námi eða hætta námi á fyrstu árum í framhaldskóla, hafa oft ekki fullnægjandi skýringu á vanda sínum en finna oft fyrir uppgjöf og kvíða.  Erfiðleikar í námi gætu átt rót í leshömlun sem gæti verið undirliggjandi ástæða í einhverjum tilvikum.

Afleiddar afleiðingar leshömlunar eru oft kvíði, stress og þunglyndi sem meðal annars hamlar oft hreyfanleika á vinnumarkaði.

Ert þú með leshömlun? – taktu prófið

Næstu skref

Skoðaðu námskeiðin eða hafðu samband við Lestrarmiðstöð, netfangið audur@lestur.is