Betri lestur
Læsi í víðum skilningi, lestur, talað mál, tjáning, ritun og tölvu- og upplýsingafærni. Kennt er einu sinni í viku 60 mínútur í senn.
Markmið námskeiðsins er:
- Að auka lestrarfærni og sjálfstraust nemenda gegnum vinnu með tjáningu, lestur og ritun.
- Að þjálfa nemendur í að nýta sér fjölbreytta möguleika tækninnar við lestur og ritun.
Einstaklingstímar eða fámennir hópar. Hafið samband lestur@lestur.is.
Það sem við gerum
Lestrarmiðstöðin veitir sérhæfða kennslu í lestri fyrir börn og fullorðna með leshömlun (dyslexia). Einnig kennslu í lestrartengdum námsgreinum því erfiðleikar í lestri koma víða fram í námi svo sem í lesskilningi, ritun, stafsetningu og erlendum tungumálum.
Aðferðin okkar
Í Lestrarmiðstöð er unnið með grunnþætti lestrar samkvæmt kennsluaðferðum sem byggja á rannsóknum á leshömlun og aðferðum sem reynst hafa árangursríkar við lestrarkennslu.
Markmið okkar hefur frá upphafi verið að allir sem til okkar koma sýni framfarir, við byggjum kennsluna upp á jákvæðni, nýtum fjölbreyttar leiðir við þjálfun, nýtum tölvutæknina, rafbækur og hljóðefni.
Önnur námskeið
Bóka námskeið
Hafðu samband við Lestrarmiðstöð til þess að bóka námskeið.