Ertu með leshömlun (lesblindu)?

Um skimun á leshömlun (lesblindu).

Það getur verið viðkvæmt mál að leita sér aðstoðar vegna vanda við lestur eða ritun. Hér á eftir er spurningalisti um helstu einkenni leshömlunar sem fyrsta skref í að meta leshömlun. Það auðveldar fólki að leita aðstoðar, ráðgjafar eða frekari greiningar,

Leshömlun getur haft áhrif bæði í námi og starfi og dregið úr sveigjanleika fólks á vinnumarkaði. Skimunin er ætluð unglingum og fullorðnum.

Lestrarskimun

Ef þú svarar þremur af eftirfarandi spurningum jákvætt ættir þú að svara öllum spurningalistanum.

  • Varstu lengi að læra að lesa?
  • Er lesturinn hægur ?
  • Er stafsetning mjög óörugg ?
  • Áttu í erfiðleikum með erlend tungumál?
  • Var erfitt að læra margföldunartöflur í skóla?

Það tekur um það bil 10-15 mínútur að taka prófið.

Taktu prófið